(fsp) breyting skilmálum deiliskipulags
Austurbakki 2, Tónlistarhús
Síðast Synjað á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 541
5. júní, 2015
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Landstólpa þróunarfélags ehf. dags. 2. júní 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 2 við Austurbakka. Í breytingunni felst að fella niður eftirfarandi setningu í kafla 6.2, reitur 1 í greinargerð: "Fimmta og sjötta hæð eru inndregnar, sú sjötta meira en fimmta." Í staðinn kemur eftirfarandi setning: "Efsta hæð bygginga verði inndregin í samræmi við deiliskipulagsuppdrátt - sneiðingar."
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.