(fsp) breyting skilmálum deiliskipulags
Austurbakki 2, Tónlistarhús
Síðast Synjað á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 532
20. mars, 2015
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 6. mars 2015 var lögð fram fyrirspurn Teiknistofunnar Arkitektar ehf. dags. 23. febrúar 2015 varðandi aukningu á nýtingarhlutfalli B og C rýmis á reit 5 á lóð nr. 2 við Austurbakka ásamt uppbroti á hlið er snýr að Reykjastræti og minnkun lámarks dýptar innskota. Einnig er lögð fram greinargerð Teiknistofunnar Arkitektar ehf. dags. 23. febrúar 2015. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. mars 2015.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. mars 2015 samþykkt.