(fsp) breyting skilmálum deiliskipulags
Austurbakki 2, Tónlistarhús
Síðast Synjað á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 552
28. ágúst, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Landstólpa þróunarfélags ehf., dags. 2. júní 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 2 við Austurbakka. Í breytingunni felst að fella niður eftirfarandi setningu í kafla 6.2, reitur 1 í greinargerð: "Fimmta og sjötta hæð eru inndregnar, sú sjötta meira en fimmta." Í staðinn kemur eftirfarandi setning: "Efsta hæð bygginga verði inndregin í samræmi við deiliskipulagsuppdrátt - sneiðingar", samkvæmt uppdr. Batterísins arkitekta ehf., dags. 5. júní 2015. Tillagan var auglýst frá 30. júní 2015 til og með 12. ágúst 2015. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar