(fsp) breyting skilmálum deiliskipulags
Austurbakki 2, Tónlistarhús
Síðast Synjað á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 718
1. mars, 2019
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Sigurðar Einarssonar dags. 21. febrúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna lóðarinnar nr. 2 við Austurbakka. Í breytingunni felst að byggingarreitur 6 er stækkaður um u.þ.b. tvo metra þannig að ytri mörk til austurs nái yfir núverandi burðarvegg meðfram rampi í kjallara og leyfilegt byggingarmagni í kjallara á reit 6 fyrir almenna notkun er aukið, samkvæmt uppdr. Batteríssins arkitekta ehf. dags. 1. febrúar 2019.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018