(fsp) breyting skilmálum deiliskipulags
Austurbakki 2, Tónlistarhús
Síðast Synjað á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 551
21. ágúst, 2015
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Landstólpa þróunarfélags ehf. dags. 2. júní 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 2 við Austurbakka. Í breytingunni felst að fella niður eftirfarandi setningu í kafla 6.2, reitur 1 í greinargerð: "Fimmta og sjötta hæð eru inndregnar, sú sjötta meira en fimmta." Í staðinn kemur eftirfarandi setning: "Efsta hæð bygginga verði inndregin í samræmi við deiliskipulagsuppdrátt - sneiðingar", samkvæmt uppdr. Batterísins arkitekta ehf. dags. 5. júní 2015. Auglýsing stóð yfir frá 30. júní 2015 til og með 12. ágúst 2015. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.