breyting á deiliskipulagi
Borgartún 1 og 3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 692
27. júlí, 2018
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. júlí 2018 var lögð fram fyrirspurn Fernando Andrés C. De Mendonca, dags. 28. júní 2018 ásamt bréfi ódags. um breytingu á deiliskipulagi Borgartúnsreits vestur vegna lóðarinnar nr. 1 við Borgartún sem felst í stækkun lóðar, stækkun byggingareits, auka byggingarmagn og fjölga hæðum um eina ásamt breytingu á bílastæðakröfu, samkvæmt uppdrætti og skuggavarpi PKdM Arkitekta ehf. dags. 28. júní 2018. Einnig er lögð fram tillaga PKdM Arkitekta ehf. að hóteli dags. 28. júní 2018. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt tölvupósti frá fyrirspyrjanda dags. 24. júlí 2018.
Svar

Lagður fram tölvupóstur fyrirspyrjanda dags. 24. júlí 2018.