breyting á deiliskipulagi
Borgartún 1 og 3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 728
17. maí, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn PKdM Arkitekta ehf. dags. 7. desember 2018 ásamt bréfi dags. 14. febrúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Borgartúnsreits vegna lóðanna nr. 1 og 3 við Borgartún. Í breytingunni felst stækkun lóðarinnar byggingarreits nr. 1 til austurs, aukið byggingarmagn, hækkun hámarkshæðar og breytingu á bílastæðakröfu. Lóð nr. 3 minnkar sem nemur stækkun lóðarinnar nr. 1 við Borgartún, samkvæmt uppdr. PKdM Arkitekta ehf. dags. 14. febrúar 2019. Einnig er lagt fram skuggavarp dags. 18. október 2018. Tillagan var auglýst frá 27. mars 2019 til og með 8. maí 2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar