breyting á deiliskipulagi
Borgartún 1 og 3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 715
8. febrúar, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. janúar 2019 var lögð fram umsókn PKdM Arkitekta ehf. dags. 7. desember 2018 ásamt bréfi dags. 26. október 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Borgartúnsreits vegna lóðaranna nr. 1 og 3 við Borgartún. Í breytingunni felst stækkun lóðarinnar byggingarreits nr. 1 til austurs, aukið byggingarmagn, hækkun hámarkshæðar og breytingu á bílastæðakröfu. Lóð nr. 3 minnkar sem nemur stækkun lóðarinnar nr. 1 við Borgartún, samkvæmt uppdr. PKdM Arkitekta ehf. dags. 29. nóvember 2018. Einnig er lagt fram skuggavarp dags. 27. nóvember 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.