breyting á deiliskipulagi
Borgartún 1 og 3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 704
9. nóvember, 2018
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 2. nóvember 2018 var lögð fram fyrirspurn PKdM Arkitekta ehf. dags. 23. október 2018 ásamt bréfi dags. 26. október 2018 um breytingu á deiliskipulagi Borgartúnsreits vegna lóðarinnar nr. 1 við Borgartún sem felst í auknu byggingarmagni og hækkun hámarkshæðar húss, stækkun lóðar til austurs að lóðinni Borgartún 3 og samsvarandi minnkun þeirrar lóðar o.fl., samkvæmt deiliskipulagsuppdr. PKdM Arkitekta ehf. dags. 26. október 2018. Einnig er lagður fram skuggavarpsuppdr. PKdM Arkitekta ehf. dags. 26. október 2018 og tillaga PKdM Arkitekta ehf. að byggingu á lóðinni dags. 26. október 2018. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. nóvember 2018.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa samþykkt, dags. 9. nóvember 2018.