(fsp) breyting á deiliskipulagi
Ármúli 7-9
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 665
19. janúar, 2018
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. janúar 2018 var lögð fram fyrirspurn THG Arkitekta ehf. mótt. 7. desember 2017 um að breyta deiliskipulagi Ármúla, Vegmúla og Hallarmúla vegna lóðarinnar nr. 7 við Ármúla sem felst m.a. í að rífa tengibyggingu 7B og byggja nýja 5. hæða tengibyggingu með kjallara og inndregna efstu hæð sem fer í framlínu aðalhúss, hækka framhús um eina hæð og tengja við húsið að Ármúla 9, samkvæmt tillögu THG Arkitekta ehf. dags. 7. nóvember 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. janúar 2018.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. janúar 2018 samþykkt.