(fsp) breyting á deiliskipulagi
Ármúli 7-9
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 711
11. janúar, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn THG Arkitekta ehf. dags. 5. desember 2018 um breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar, Ármúla, Hallarmúla og Vegmúla vegna lóðarinnar nr. 7 við Ármúla sem felst í að tengja núverandi byggingar Ármúla 7 við rekstur hótelsins í Ármúla 9, bæta inndreginni hæð ofan á núverandi samþykktar þrjár hæðir, færslu á byggingarreit og breytingu á nýtingarhlutfalli, samkvæmt uppdr. THG Arkitekta ehf. dags. 5. desember 2018. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. janúar 2019.
Svar

Ekki gerðar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. janúar 2019.