Opna á milli hótelsins - Ármúla 7 og 9 og koma fyrir flótasvalir á 5 hæð
Ármúli 9
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 546
10. júlí, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Ragnars Auðuns Birgissonar mótt. 27. maí 2015 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Suðurlandsbrautar, Hallamúla, Ármúla og Vegmúla vegna lóðarinnar nr. 9 við Ármúla. Í breytingunni felst að heimilt er að lyftu- og tæknirými standi upp úr núverandi mænishæð húsa eins og búnaður og öryggissjónarmið krefjast, samkvæmt tillögu THG Arkitekta ehf. dags. 4. júní 2015. Tillagan var grenndarkynnt frá 11. júní til 9. júlí. Samþykki hagsmunaaðila barst fyrir lok kynningar og er erindi því lagt fram að að nýju til afgreiðslu.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar