framkvæmdaleyfi
Laugalækur og Hrísateigur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 525
30. janúar, 2015
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 28. janúar 2015 þar sem spurt er hvort framkvæmdaleyfi þurfi vegna djúpgáma við Hrísateig skv. uppdrætti Verkís, dags. 27. júní 2014. Um er að ræða niðurgrafna grenndargáma við gatnamót Laugalækjar og Hrísateigs framan við hús nr. 5-11 við Laugalæk. Á yfirborði eru aðeins litlar tunnur og flokkunarúrgangurinn safnast saman í neðanjarðargáma. Gert er ráð fyrir að fjöldi gáma sé 5 eða 7 stk.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.