breyting á deiliskipulagi
Grjótháls 1-3
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 752
22. nóvember, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. ágúst 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. júlí 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða viðbyggingu úr stálgrind á steyptum sökkli sem tengist 2. og 3. hæð ásamt því að gerð er grein fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi atvinnuhúss á lóð nr. 1-3 við Grjótháls. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt tölvupósti Guðbjarts Magnússonar dags. 19. nóvember 2019 þar sem umsókn nr. SN190472 er dregin til baka.
Erindi fylgir bréf umsækjanda dags. 17. júlí 2019. Stækkun: 2.090,2 ferm., 10.499,2 rúmm. Eftir stækkun, samtals: 10.243,2 ferm., 54.309,4 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Umsókn varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna viðbyggingarinnar hefur verið dregin til baka, sbr. tölvupóst Guðbjarts Magnússonar dags. 19. nóvember 2019