breyting á deiliskipulagi
Grjótháls 1-3
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 799
27. nóvember, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 23. nóvember 2020 þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa vegna umsóknar Eikar fasteignafélags f.h. Össurs hf. dags. 1. september 2020 um afnot af borgarlandi við Grjótháls 1-3 undir tímabundin bílastæði vegna fyrirhugaðra framkvæmda innan lóðar. Óskað er eftir afnotum til 1. nóvember 2021. Einnig er lögð fram greinargerð ódags. og uppdráttur T.ark arkitekta ehf. dags. 8. september 2020. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. nóvember 2020.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. nóvember 2020, samþykkt.