framkvæmdaleyfi
Vetrargarður í Breiðholti
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 881
25. ágúst, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. júlí 2022 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 8. júlí 2022 um framkvæmdaleyfi fyrir Vetrargarðinn í Breiðholti sem felst í móttöku á jarðvegi og mótun skíðabrekkna og lands innan svæðisins. Einnig eru lagðar fram yfirlitsmyndir. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. ágúst 2022.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 24. ágúst 2022 .
Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1551/2021.