Ofanábygging
Stigahlíð 45-47
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 576
4. mars, 2016
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. mars 2016 þar sem sótt er um leyfi til að stækka vörulyftu milli hæða og láta hana þjóna kjallara einnig, setja hringstiga milli 1. hæðar og kjallara í húsnæði Bakarameistarans, endurinnrétta geymslu- og starfsmannaaðstöðu í suðurhluta hússins/kjallara, endurinnrétta skrifstofur í norðurhluta 2. hæðar og setja svalir á verslanakjarnann Suðurver á lóð nr. 45-47 við Stigahlíð.
Meðfylgjandi er brunahönnunarskýrsla Verkís dags. feb. 2016 og samþykki eins eiganda af þrem. Gjald kr. 10.100
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

105 Reykjavík
Landnúmer: 107208 → skrá.is
Hnitnúmer: 10000657