Ofanábygging
Stigahlíð 45-47
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 658
17. nóvember, 2017
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. nóvember 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja eina hæð ofan á núverandi hús með 14 íbúðum og sameiginlegu þvottahúsi ásamt því að endurinnrétta 2. hæð fyrir skrifstofur, setja lyftu sem tengir allar hæðir og koma fyrir hjóla- og vagnageymslu í kjallara í húsi á lóð nr. 45-47 við Stigahlíð.
Stækkun: A-rými 933,4 ferm., 3.116,3 rúmm.
Fylgigögn með erindi eru: Samþykki meðeigenda dags. 19.04.2017. Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 04.03.2017. Bréf arkitekts dags. 18.04.2017 og 30.10.2017. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 18.04.2017. Brunahönnunarskýrsla dags. apríl 2017. Hljóðvistarskýrsla dags. febrúar 2017. Lagður er fram lóðarleigusamningur fyrir bílastæðalóð dags. 01.02.2007. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. júlí 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. júlí 2017. Gjald kr. 11.000
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

105 Reykjavík
Landnúmer: 107208 → skrá.is
Hnitnúmer: 10000657