breyting á deiliskipulagi
Haðaland 26, Fossvogsskóli
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 657
10. nóvember, 2017
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn skrifstofa eigna og atvinnuþróunar, mótt. 14. júlí 2017, um breytingu á deiliskipulagi Fossvogsskóla. Í breytingunni felst að koma fyrir nýjum byggingarreit fyrir færanlegar kennslustofur á suðausturhluta lóðarinnar, samkvæmt uppdrætti umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 31. ágúst 2017. Lagður fram tölvupóstur Guðmundar Benediktssonar dags. 7. nóvember 2017 þar sem farið er fram á frestun málsins.
Svar

Samþykkt að framlengja athugasemdarfrest til 30. nóvember 2017.