breyting á deiliskipulagi
Höfðabakki 5
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 742
6. september, 2019
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Ártúnshöfða - Eystri vegna lóðarinnar nr. 5 við Höfðabakka. Í breytingunni felst að koma fyrir fimm smáhýsum á lóðinni en Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitast eftir að koma fyrir smáhýsum á völdum stöðum í borginni sem búsetuúrræði fyrir skjólstæðinga sína. Ekki er gert ráð fyrir að búseta sé varanleg notkun á lóðinni. Við breytinguna minnkar nýtingarhlutfall lóðarinnar og byggingareitur færist, samkvæmt uppdr. teiknistofunnar Stika ehf. dags. 13. júní 2019. Tillagan var auglýst frá 24. júlí til og með 4. september 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Lögmál ehf. f.h. Vélvík ehf. dags. 3. september 2019, Megin lögmannsstofa f.h. Opus fasteignafélag ehf. dags. 3. september 2019, Juris f.h. Odda prentunar og umbúða ehf. dags. 3. september 2019, XXXX
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

110 Reykjavík
Landnúmer: 110679 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023147