breyting á deiliskipulagi
Skipholt 29 og 29A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 577
11. mars, 2016
Frestað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 4. desember 2015 var lögð fram umsókn GP arkitekta ehf., mótt. 25. nóvember 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.250.1, Skipholtsreits, vegna lóðarinnar nr. 29 og 29A við Skipholt. Í breytingunni felst að hækka húsið á lóðinni og bæta við einni hæð, setja kvisti á 2/3 hluta þakflöts og svalir á suðurhlið húss nr. 29, setja stiga/lyftuhús auk svalagangs norðan við húsið nr. 29A og rífa núverandi stigahús inn í húsinu, samkvæmt uppdr. GP arkitekta ehf., dags. 25. nóvember 2015. Einnig er lagt fram bréf GP arkitekta ehf., dags. 25. nóvember 2015. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Frestað.
Leiðrétt gögn og samþykki meðlóðarhafa hafa ekki borist embætti skipulagsfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103430 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016947