breyting á deiliskipulagi
Skipholt 29 og 29A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 591
1. júlí, 2016
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 11. mars 2016 var lögð fram umsókn GP arkitekta ehf., mótt. 25. nóvember 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.250.1, Skipholtsreits, vegna húsanna nr. 29 og 29A við Skipholt á lóð nr. 29 við Skipholt. Í breytingunni felst að hækka heimilaða hámarkshæð um 80 cm umfram það sem núgildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir og hækka heimilt nýtingarhlutfall úr 2,0 í 2,16, byggingarreitur húss nr. 29 er dýpkaður til norðurs og gerður er nýr byggingarreitur fyrir lyftu- og stigahús. Húsin mega vera 4 hæðir og skal efsta hæðin vera formuð sem þakhæð. Leyfilegt er að setja lóðrétta kvista á 2/3 hluta þakflatar og setja svalir og svalahurðar á suðurhlið og inngangshurðir á norðurhlið, samkvæmt uppdr. GP arkitekta ehf., dags. 12. mars 2016. Einnig er lagt fram bréf GP arkitekta ehf., dags. 25. nóvember 2015 og samþykki meðlóðarhafa, mótt. 23. júní 2016. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs
Vakin er athygli umsækjanda á að erindið fellur undir gr. 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103430 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016947