Svalir - brunamerkingar
Freyjugata 24
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 692
27. júlí, 2018
Samþykkt
454817
454008 ›
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. maí 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir á norðvesturhlið 2. hæðar, uppfæra brunamerkingar, færa til starfsmannaaðstöðu í kjallara og breyta flokkun gistiheimilis í flokk III, teg. b í húsi á lóð nr. 24 við Freyjugötu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. maí 2018. Erindi var grenndarkynnt frá 22. júní 2018 til og með 20. júlí 2018. Engar athugasemdir bárust.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. desember 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. desember 2017. Einnig bréf hönnuðar með skýringum dags. 6. mars 2018 og minnisblað um brunavarnir dags. 7. febrúar 2018, útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. apríl 2018 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. apríl 2018. Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102297 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010741