breyting á deiliskipulagi
Laugarásvegur 37
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 428
25. janúar, 2013
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi Ragnheiðar Ebenezersdóttur dags. 22. janúar 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.382.1 vegna bílgeymslulóðar við enda Kleifarvegar. Í breytingunni felst að stækka bílgeymslulóð húsanna á lóðunum nr. 29, 29A, 35 og 37 við Laugarásveg, samkvæmt uppdr. Arkhússins ehf. dags. 21. janúar 2013. Einnig er lagt fram samþykki lóðarhafa dags. 4. janúar 2013.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir fyrir hagsmunaaðilum að Vesturbrún 18, 20, 22, 24, 26 og 28 og að Laugarásvegi 27, 29, 31, 33 og 35.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104827 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016703