Bygging garðskála
Drafnarstígur 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 560
30. október, 2015
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. október 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja garðskála úr timbri á steyptum sökkli, og gerð er grein fyrir kjallara undir einbýlishúsi á lóð nr. 5 við Drafnarstíg
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. desember 2014 fylgir erindinu. Einnig umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 5. maí 2014, samþykki eiganda, samþykki lóðarhafa Drafnarstígs 5A og Bræðraborgastígs 12 dags. 6. október 2015 og tölvupóstur frá umsækjanda dags. 22. október 2015 þar sem óskað er eftir að erindið verði grenndarkynnt. Stækkun viðbygging: 11,3 ferm., 28,2 rúmm. Stækkun vegna áður gerðs kjallara: 26,6 ferm. 53,2 rúmm. Samtals: 37,9 ferm., 81,4 rúmm. Gjald kr. 9.500 + 9.823
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Drafnarstígur 3, 5A, 7 og Bræðraborgarstíg 10, 12 og 14. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 8.1. gr, sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2015.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100340 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009205