Byggja æfingasal
Skipholt 31
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 729
24. maí, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. maí 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. maí 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja æfingasal fyrir Listaháskóla Íslands ofan á mhl. 02 í húsi á lóð nr. 31 við Skipholt. Einnig eru lagðir fram uppdrættir dags. 30. apríl 2019 síðast uppfærðir 16. maí 2019. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Erindi fylgir mæliblað nr. 1.251.0. Stækkun: 224,9 ferm, 976,9 rúmm. B-rými: 10,4 ferm. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Laugavegi 170-172, 174 og 176, Skipholti 33 og Brautarholti 29 og 33.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynninguna, sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103433 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016949