nr. 11B - ósk um umsögn um breyttan opnunartími hjá Lyfju
Skeifan 11
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 551
21. ágúst, 2015
Synjað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 10. apríl 2015 var lögð fram umsókn LX fasteigna ehf. dags. 9. apríl 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skeifunnar vegna lóarinnar nr. 11 við Skeifuna. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni, fjölgun bílastæða o.fl., samkvæmt uppdrætti Trípólí dags. 9. apríl 2015. Umsókninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt bréfi Hróbjarts Jónatanssonar hrl. f.h. eigenda Skeifunnar 11 dags. 2. júní 2015, umboði Investo ehf. dags. 31. maí 2015, umboði Reita VII ehf. dags. 31. maí 2015, umboði Eikar Fasteignafélags hf. dags. 31. maí 2015, umboði Reita I ehf. dags. 31. maí 2015. Lögð fram umsögn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, dags. 18. ágúst 2015. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. ágúst 2015.
Svar

Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 21. ágúst 2015.