framkvæmdaleyfi
Suðurlandsbraut frá Engjavegi að Langholtsvegi
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 634
2. júní, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. maí 2017 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds, mótt. 16. maí 2017, um framkvæmdaleyfi vegna gerð göngu- og hjólastígs meðfram Suðurlandsbraut frá Engjavegi að Langholtsvegi. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 1. júní 2017..
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 1. júní 2017 . Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.3 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.