breyting á aðalskipulagi
Aðalskipulag Reykjavíkur 2040, íbúðarbyggð og blönduð byggð
Síðast Vísað til umsagnar deildarstjóra aðalskipulags á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 757
10. janúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
Að lokinn kynningu á drögum að tillögu umhverfis- og skipulagssviðs dags. í september 2019 er lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags. í nóvember 2019 að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Tillaga að breytingu nær annarsvegar til legu Korpulínu 1 milli tengivirkisins við Geitháls að tengivirki Korpu við Vesturlandsveg og hinsvegar til lítilsháttar breytingar á legu Rauðavatnslínu 1, frá Geithálsi að aðveitustöð við Suðurlandsveg. Einnig er lögð fram umhverfisskýrsla dags. september 2019. Eftirtaldar stofnanir sendu umsagnir vegna kynningar á drögum á tillögu umhverfis- og skipulagssviðs: Mosfellsbær dags. 11. október 2019, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur dags. 24. október 2019 og Garðabær dags. 25. október 2019, Kópavogsbær dags. 4. nóvember 2019 og Vegagerðin dags. 19. nóvember 2019. Einnig er lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 18. desember 2019 þar sem ekki er gerð athugasemd við að skipulagstillagan verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga, þegar mynd 4 á bls. 7 í greinargerð breytingarinnar hefur verið lagfærð.
Svar

Vísað til meðferðar hjá deildarstjóra aðalskipulags.