breyting á deiliskipulagi
Traðarland 1, Víkingur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 585
13. maí, 2016
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 8. apríl 2016 var lagt fram erindi skrifstofu borgarstjórnar, dags. 8. mars 2016, þar sem óskað er eftir umsögn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, Íþrótta og tómstundaráðs og umhverfis- og skipulagssviða á eftirfarandi tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins frá fundi borgarstjórnar 1. mars 2016 um stækkun athafnasvæðis Víkings: "Borgarstjórn felur borgarstjóra að gera ráðstafanir er nauðsynlegar kunna að vera í því skyni að Reykjavíkurborg standi við fyrirheit sitt um stækkun athafnasvæðis Knattspyrnufélagsins Víkings eftir að leigusamningur við lóðarhafa að Stjörnugróf 18 rennur út í árslok 2016, í samræmi við samþykkt borgarráðs hinn 10. júlí 2008. Jafnframt felur borgarráð skipulagsráði að kanna möguleika á nýrri staðsetningu gróðrarstöðvar, sem nú er á lóðinni, í samráði við eigendur hennar. Knattspyrnufélagið Víkingur er hverfisíþróttafélag, sem gegnir mikilvægu hlutverki í þágu íþrótta- og æskulýðsmála í smáíbúða- Bústaða- og Fossvogshverfum." Óskað er eftir að sviðin og skrifstofan geri sameiginlegt minnisblað. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar til borgarráðs, dags. 21. mars 2016 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12.maí 2016.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. maí 2016, samþykkt.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108838 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007767