(fsp) rekstur verslunar, kaffihúss og bakarís á jarðhæð hússins
Laugavegur 55
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 594
21. júlí, 2016
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 27. maí 2016 var lögð fram umsókn Gunnars Bergmanns Stefánssonar arkitekts f.h. L55 ehf., mótt. 17. maí 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.173.0 vegna lóðarinnar nr. 55 við Laugaveg. Í breytingunni felst að breyta kvistum á 5. hæð. Kvistur er minnkaður og tveimur nýjum kvistum er bætt við. Öll útisvæði verða nýtt sem græn svæði. Einnig verður byggingarmagni breytt í 3. hæðir og kjallara á öllum bakhluta byggingarinnar. Op verður gert í miðri byggingunni og þar með verði heildarbyggingarmagn óbreytt, samkvæmt uppdr. Gunnars Bergmanns Stefánssonar arkitekts, dags. 12. maí 2016. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 27. maí 2015. Einnig er lagður fram tölvupóstur umsækjanda dags 19. júlí 2016 þar sem óskað eftir að erindi sé dregið til baka.
Svar

Erindið dregið til baka sbr. tölvupóstur umsækjanda dags. 19. júlí 2016.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101507 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017576