Endurnýjun útveggja - breyting í mötuneyti o.fl.
Bæjarháls 1
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 681
18. maí, 2018
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Orkuveitu Reykjavíkur dags. 7. maí 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 1 við Bæjarháls. Í breytingunni felst að gerður er nýr byggingarreitur fyrir neyðarrafstöð, eldsneytistank og tvær kælivélar við hlið akstursramps austan megin við Norðurhús við lóðarmörk Réttarhálsi 2, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 4. maí 2018.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Réttarhálsi 2.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.