breyting á deiliskipulagi
Hverfisgata 16A
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 541
5. júní, 2015
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.171.0 vegna lóðanna nr. 16 og 16A við Hverfisgötu. Í breytingunni felst að sett er kvöð um aðkomu á lóð nr. 16 við Hverfisgötu fyrir lóð nr. 16A við Hverfisgötu, samkvæmt uppdr. Teiknistofu arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf. dags. 26. mars 2015. Tillagan var grenndarkynnt frá 16. apríl til og með 14. maí 2015. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Björn Ólafur Hallgrímsson hrl. f.h. Huldu Hákon og Hákonar Heimis Kristjónssonar eigenda fasteignarinnar að Hverfisgötu 16A dags. 30. apríl 2015 og Pálína Jónsdóttir f.h. Húsfélags Hverfisgötu 16, undirrituð Pálína Jónsdóttir, Sigrún Ásgeirsdóttir, Frances Harper, Halldóra Ólafsdóttir, Sigurður Pálmason og Helga Rut Arnarsdóttir 16 dags. 13. maí 2015.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101350 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022347