(fsp) - Austurstr. 12-14 - Útiveitingar v/Vallarstræti
Austurstræti 12
Síðast Synjað á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 347
29. apríl, 2011
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 15. apríl 2011 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. apríl 2011 þar sem sótt er um breyttan gestafjölda innanhúss og um leyfi fyrir útiveitingum bæði við Austurstræti og Vallarstræti í veitingastað á 1. hæð í húsi á lóð nr. 12 við Austurstræti. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 12. apríl 2011. Lagt fram að nýju ásamt upplýsingum umsækjenda varðandi útlit húsgagna og umsögn skipulagsstjóra dags. 27. apríl 2011.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100850 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007458