(fsp) rekstur veitingastaðar í flokki II
Frakkastígsreitur 1.172.1
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 494
6. júní, 2014
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 16. maí 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. maí 2014 þar sem sótt er um leyfi til að byggja 1. og 2. áfanga nýbygginga á svokölluðum Frakkastígsreit, Hverfisgötu 58-60, mhl. 02, steinsteypt fimm hæða fjölbýlishús með fimmtán íbúðum á efri hæðum, verslun og þjónustu á jarðhæð og bílakjallara og mhl. 03, Laugavegur 41A, fjögurra hæða fjölbýlishús með átta íbúðum á sameinaðri lóð nr. 8 við Frakkastíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. júní 2014.
Meðfylgjandi er greinargerð um algilda hönnun dags. 5. maí 2014, orkurammi dags. 1. maí 2014, umsögn Minjastofnunar dags. 8. maí 2013, greinargerð hönnuðar um skipulagsskilmála dags. 20. og 27. maí 2014 og bílastæðabókhald, ódagsett. Stærð mhl.02: 3.027,3 ferm., 9.522,5 rúmm. Stærð mhl.03: 959,5 ferm., 3.107,9. Samtals: 3.986,8 ferm., 12.630,4. Gjald kr. 9.500
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 5. maí 2014.