Sótt um br. á starfsemi og jafnfr. innra skipulagi á 1. hæð og kjallara í Mathöll (veitingarekstur) samr./samtengd Mathöllin í Pósthússt. 5. Sótt um endurbygg. bakbyggingar í porti - verður hluti matahallar.
Pósthússtræti 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 779
26. júní, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn THG Arkitekta ehf. dags. 6. apríl 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar, með síðari breytingum, vegna lóðanna nr. 3 og 5 við Pósthússtræti. Í breytingunni felst að skilgreina heimildir fyrir viðbyggingu í porti og endurbyggingu á núverandi bakbyggingu ásamt því að heimilt verði að rífa núverandi bakbyggingu á lóð Pósthússtrætis 5 og byggja í staðinn 272 m2 viðbyggingu á 1. hæð ásamt kjallara, samkvæmt uppdr. THG Arkitekta ehf. dags. 8. maí 2020. Tillagan var grenndarkynnt frá 26. maí 2020 til og með 23. júní 2020. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100840 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025079