(fsp) breyting á notkun
Bankastræti 14
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 623
3. mars, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn GP-arkitekt ehf. dags. 18. nóvember 2016 þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar nr. 14 við Bankastræti. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður til suðurs, samkvæmt uppdr. GP-arkitekta ehf. dags. 18. nóvember 2016. Meðfylgjandi er samþykki eigenda að Bankastræti 14 og Skólavörðustíg 2. Tillaga var grenndarkynnt frá 30. janúar til og með 27. febrúar 2017. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.