Viðbygging - endurbætur
Laufásvegur 59
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 529
27. febrúar, 2015
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. febrúar 2015 þar sem sótt er um leyfi til að rífa eldri viðbyggingar til norðurs og vesturs, lækka gólf í kjallara, byggja anddyri til vesturs, bogadregna viðbyggingu úr stofu til suðurs og borðstofu til austurs, breyta innra skipulagi og gera svalir ofan á öllum viðbyggingum á einbýlishúsi á lóð nr. 59 við Laufásveg.
Rif eldri viðbygginga: 4,5 ferm., 11 rúmm. Nýjar viðbyggingar: 95,7 ferm., 258,4 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Bergstaðastræti 60, 62, 62A og 64 og Laufásvegi 57, 58, 60 og 61.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102701 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016562