breyting á deiliskipulagi
Grjótháls 7-11
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 894
24. nóvember, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. september 2022 var lögð fram umsókn Urban arkitekta ehf dags. 7. ágúst 2022, um breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 7-11 við Grjótháls. Í breytingunni sem lögð er til felst að byggingarreitur sem ætlaður er fyrir spennistöð við syðri lóðamörk verði færður að norður lóðamörkum, samkvæmt uppdr. Urban arkitekta ehf. dags. 22. nóvember 2022. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

110 Reykjavík
Landnúmer: 111019 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010868