framkvæmdaleyfi
Fiskislóð - Hjólastígur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 854
28. janúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. janúar 2022 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 17. desember 2021 um framkvæmdaleyfi fyrir gerð hjólastígs meðfram Fiskislóð. Einnig er lagt fram teikningahefti Faxaflóahafna sf. dags. í september 2021 og yfirlitsmynd Mannvits dags. 20. september 2021. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. janúar 2022.
Svar

Leiðrétt bókun frá afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa dags. 21. janúar 2022.
Rétt bókun er:
Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 21. janúar 2022.
Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.4 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1551/2021.