breyting á deiliskipulagi
Þönglabakki 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 12 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 350
20. maí, 2011
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Reita ehf. dags. 22. febrúar 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Mjóddar vegna lóðarinnar nr. 1 við Þönglabakka. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit fyrir anddyri, samkvæmt uppdrætti Teiknistofunnar Örk dags. 22. febrúar 2011. Einnig lögð fram fundargerð stjórnarfundar svæðisfélagsins Mjódd frá 29. nóvember 2010. Jafnframt er lagt fram bréf Þjónustumiðstöðvar Breiðholts dags. 11 apríl 2011 vegna afgreiðslu hverfisráðs Breiðholts þar sem ekki er gerð athugasemd við ofangreint erindi. Tillagan var auglýst frá 28. mars 2011 til og með 12. maí 2011. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

109 Reykjavík
Landnúmer: 111722 → skrá.is
Hnitnúmer: 10000652