Stækkun, viðbygging og endurgerð - 5. hæð
Lyngháls 4
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 645
18. ágúst, 2017
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. ágúst 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja þriggja hæða viðbyggingu sem skagar út yfir neðanjarðar geymslurými í kjallara sunnan megin á lóð, fimm hæða tengibyggingu við núverandi byggingu ásamt því að stækka inndregna fimmtu hæð, útbúa nýjan inngang á norðurhlið jarðhæðar og byggja tveggja metra breitt skyggni á verslunar- og skrifstofuhús á lóð nr. 4 við Lyngháls. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. ágúst 2017.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 13. júní 2017 fylgir erindi, einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. júlí 2017. Stækkun: A rými 2.167,1 ferm. 8.986,6 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. ágúst 2017.

110 Reykjavík
Landnúmer: 180304 → skrá.is
Hnitnúmer: 10079161