(fsp) breyting á notkun húss
Suðurlandsbraut 16
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 678
27. apríl, 2018
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. apríl 2018 var lögð fram fyrirspurn THG arkitekta dags. 15. febrúar 2018 ásamt bréfi dags. 15. febrúar 2018 varðandi rekstur gististaðar í flokki II á efri hæðum hússins nr. 13A við Ármúla á lóð nr. 16 við Suðurlandsbraut með verslun og þjónustu á jarðhæð. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. apríl 2018.
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 27. apríl 2018.