(fsp) breyting á notkun húss
Suðurlandsbraut 16
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 820
14. maí, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. janúar 2021 var lögð fram umsókn Einars V. Tryggvasonar dags. 15. desember 2020 ásamt bréfi dags. 12. desember 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Ármúla, Vegmúla og Hallarmúla vegna lóðarinnar nr. 16 við Suðurlandsbraut. Í breytingunni felst stækkun hússins ásamt því að setja skyggni yfir inngang á þriðju hæð og útistiga upp á þriðju hæð, samkvæmt uppdr. Einars V. Tryggvasonar dags. 28. október 2020. Einnig er lögð fram yfirlýsing/samþykki Veitna ehf. vegna spennistöðvar 518 að Vegmúla 4, ódags. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Suðurlandsbraut 14.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr. og 12. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.