breyting á deiliskipulagi
Suðurlandsbraut 18
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 555
25. september, 2015
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 4. september 2015 var lögð fram fyrirspurn Ask arkitekta ehf. mótt. 31. ágúst 2015 um að breyta núverandi starfssemi í húsinu á lóð nr. 18 við Suðurlandsbraut úr verslunar- og skrifstofuhúsnæði í hótel og leggja niður bílastæði á þaki bílageymslu og byggja ofan á hana þrjár hæðir, samkvæmt tillögu Ask arkitekta ehf., dags. 26. ágúst 2015. Einnig er lagt fram bréf Ask arkitekta ehf. dags. 28. ágúst 2015. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. september 2015.
Svar

Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. september 2015.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103524 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022019