(fsp) nýtt hlutverk bygginga núverandi höfuðstöðva Landsbankans
Kvosin
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 531
13. mars, 2015
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Ask Arkitekta ehf. f.h. Lindarvatns ehf. dags. 11. mars 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Landsímareits vegna lóðanna nr. 7. við Aðalstræti og 2 og 4 við Vallarstræti. Í breytingunni felst m.a. breyting á skilmálum þannig að að lyftu- og loftræstistokkar megi fara yfir uppgefna kóta og ákvæði um einhalla þök kvista að Aðalstræti 7 er fellt niður. Lóðin Vallarstræti 2 er lögð niður og skipt milli lóðanna Aðalstræti 7 og Vallarstræti 4, o.fl. samkvæmt bréfi Ask Arkitekta ehf. dags. 11. mars 2015. Einnig er lögð fram skýringarmynd Ask Arkitekta ehf. ódags.
Svar

Kynna formanni umhverfis- og skipulagsráðs.