(fsp) breyting á deiliskipulagi
Sundlaugavegur 34
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 657
10. nóvember, 2017
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. október 2017 var lögð fram að nýju fyrirspurn Önnu Sigríðar Jóhannsdóttur, mótt. 3. október 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir Sundlaugarveg 34 sem felst í hækkun á þakhæð hússins ásamt hækkun á byggingarmagni lóðar, samkvæmt uppdr. VA arkitekta ehf., ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. nóvember 2017.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað, sbr. leiðbeiningar í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. nóvember 2017.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.

105 Reykjavík
Landnúmer: 104722 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022702