Fjölbýlishús
Snorrabraut 54
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 657
10. nóvember, 2017
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Plúsarkitekta ehf. , mótt. 14. mars 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi Heilsuverndarreits vegna lóðarinnar nr. 54 við Snorrabraut. Í breytingunni felst að gera nýbyggingu á lóð með verslun og þjónustu á jarðhæð og í kjallara og hótel á efri hæðum, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Plúsarkitekta ehf. dags. 4. september 2017. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 8. júní 2017. Tillagan var í auglýsingu frá 27. september 2017 til og með 8. nóvember 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Rafn Guðmundsson f.h. lóðarhafa að Snorrabraut 36, dags. 1. nóvember 2017 og Hússtjórn Snorrabraut 56b og Finnur Björgvinsson f.h. íbúa Snorrabrautar 56B, dags. 6. nóvember 2017.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.