breyting á deiliskipulagi
Hamrahlíð 17
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 343
25. mars, 2011
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi ASK arkitekta f.h. Blindrafélagsins dags. 10. febrúar 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Stakkahlíð, Bogahlíð, Hamrahlíð vegna lóðarinnar nr. 17 við Hamrahlíð. Í breytingunni felst að byggja viðbyggingu ofan á 1. hæðar bílskúr, samkvæmt uppdrætti ASK arkitekta dags. 8. febrúar 2011. Tillagan var grenndarkynnt frá 17. febrúar 2011 til og með 17. mars 2011. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

105 Reykjavík
Landnúmer: 107254 → skrá.is
Hnitnúmer: 10012353