breyting á deiliskipulagi
Fossvogshverfi-einbýlishús - svæði suður af Kvistalandi 26
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 619
3. febrúar, 2017
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju lýsing umhverfis- og skipulagssviðs dags. 2. nóvember 2016 varðandi breytingu á deiliskipulagi Bjarkarás vegna lóðanna nr. 9 og 11 við Stjörnugróf og 10 við Bústaðablett Í breytingunni felst að auka byggingarmagn á lóðunum. Einnig er lögð umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, mótt. 24. ágúst 2016. Kynning stóð til og með 13. desember 2016. Eftirtaldir sendu inn athugasemdir/ábendingar: Þóra Þórarinsdóttir f.h. Áss styrktarfélags, dags. 14. desember 2016. Einnig er lögð fram umsögn Skipulagsstofnunar, dags. 30. nóvember 2016 og umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 9. desember 2016. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. desember 2016 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.